Sunday, June 29, 2008

bloggish...

Ég sat hérna inní stofu heima í sveitinni í kvöld með mömmu gömlu og horfði á Hulk... einstaklega oftæknileguð mynd ;D en ágjæt afþreying jafnframt... Við mamma fórum svo að spjalla og mamma sagði mér frá bloggi sem hún hafði rekist á í gegnum einhverjar aðra síður... En þar er á ferðinni ungur strákur sem var í MH og sat einmitt með mér hálfa önn á miðgarði... Frábær strákur, það litla sem ég kynntist honum en ástæðan fyrir að ég minnist á bloggið hans er sú að hann er að berjast við krabbamein. Mamma semsagt hafði verið að lesa bloggið ég ákvað að fara og lesa bloggið... Ég las allar færslur sem ég fann og mikið eru þær hreinskilnislegar og góðar... Og ég dáist að honum að hafa orku í að segja öllum sem vilja heyra af honum frá öllu því sem hann er að ganga í gegnum núna... það er ekkert lítið...
Jafnframt þegar ég var að lesa færslurnar hans minnti það mig alveg rosalega á færslurnar hennar Birnu um Védísi litla engilin minn... Alltaf þegar ég las þær færslur, og les ennþá þegar hún Birna nennir að blogga fór maður að hugsa um það hvað maður táraðist alltaf jafn mikið yfir því hvað allir voru að ganga í gegnum en samt gat maður alltaf brosað í gegnum tárin... og það er einstaklega gott að geta haft eilítinn húmor fyrir sjálfum sér og öðru þósvo að maður eigi erfitt, það gefur manni bara svo mikið að geta alltaf brosað.

Annars hef ég það ágjætt.. að minstakosti mun betur en aðrir! Var komin með Reykjavíkur síki á fimmtudaginn svo ég ákvað að skella mér þangað í gær, hitti Venný og við rölltum niður laugarveginn, borðuðum góðan mat og spjölluðum heilmikið um allt mögulegt.. um kvöldið hitti ég svo Ingvar og við spjölluðum jafnvel ennþá meira um daginn og veginn... Í dag fór ég svo niðrí Hafnafjörðinn til Hlyns.... Skoðaði "nýjja" húsið sem ég er búin að ætla að koma og skoða í ár!!! enda gerði mamma hans pínu grín að mér ;D og átti ég það svosem alveg skilið :p
Tattooið er svona hægt og rólega að gróa.... fer pínulítið í taugarnar á mér að pabba tattoo sé nánast fullgróið og mitt rétt að byrja... pifff.... en ég segi þá bara í staðin að mitt verði flottara ;D það versta í sambandi við þetta er nú eiginlega að fótarakstur hefur sko ekki gengið upp þessadagana... tjahh gæti rakað hálfann fótinn og allann hægrifótin... en veit ekki hversu smart það væri ;)... oooog svo líka helvítis sundferðir sem ég má ekki iðka fyrr en tattooið er gróið... og endilega núna! þegar það er frááábært veður og tilvalinn tími fyrir sundferðir... O well... maður skapaði sér þessi vandamál svosem alveg á eigin spítur ;D
Vinna á mrgn... frá 6-11... ohh það sem maður gerir ekki fyrir þessa vini sína... ég sem ætlaði sko EKKI að vinna eina sekúndu af þessari helgi.... sem væri þá 6 vinnuhelgin mín í röð... en jáhh þarna endá ég, kl 6 á mrgn... ekki einusinni láta ykkur detta það í hug að koma í hyrnuna og fá ykkur að éta!!! þið getið bara eldað heima hjá ykkur... það verður nóg að gera samt!! Fyrir vinnu ætla ég að vera uppí Lundareykjadal og ríða út og fíflast í ánni... ójáhh það er langþráð ;D;D;D

Annars er kominn innilegur tími á svefn... ætla að stela rúminu hans pabba, fyrst hann er farinn austur á hestalandsmót ;D;D það er nefinilega tempur dýna í rúminu hans... og mér er illilega illt í bakinu!!! svooo mohohoho... annars fer ég á landsmót á miðvikudag-fimmtudag... ekki alveg ákveðið.... enda frekar óákveðið plan fyrir þessa viku... plan A er... "þetta reddast".... plan B er "... pabbii..." jáhh ;D gott að hafa kallinn þarna ef allt skildi fara úrskeiðis... og svona ef ég verð mjög hungruð ;D mm já

Góða nótt, njótiðið lífsins, meðan þið getið... ;**

Friday, June 27, 2008

Flehh!!

Dagurinn í dag var erfiður... aðallega andlega... var innilega fucking pirruð allann helvítis daginn og ohh!!!! Eeeen allavegana... fékk það loksins í gegn að við Kidda erum saman á vakt... það var líka frekar mikill pirringur í stúlkunni og ég held að yfirmaðurinn hafi alveg skynjað þennann pirring!!! Og það var ágjætt því loksins dru*****st hann til að koma til móts við mig!! og ekki seinna vænna í 6 skipti sem ég bið hann um þetta! En jáhh... Lotta litla ánægð! ;D

Annars.... er ég heima, sturtuð, í slökun, við skjáinn... hlustandi á nýjja músík... fann lag... flott lag... textinn hentar mér ágjætlega... set smá brot hér... annars er ég út-skrifuð í bili... ;)

I miss you,
I miss your smile
and I still shed a tear
every once in a while
and even though it's different now
you're still here somehow
my heart won't let you go
and I need you to know
I miss you
sha la la la la
I miss you


<33

Saturday, June 21, 2008

Dagurinn í dag

Jáhh í dag... vaknaði ég og fór í vinnuna ;) frekar þreytt eftir gærkvöldið sem var skemmtilegt ;'D það var skoo rosa "útihátíð" á mannaskítsflöt, fuuuullt af fólki... fuuuuullt af of drukknu fólki ;'D sem var ágjætt ;) og skemmtilegt ;) og margt skemmtilegt sem gerðist eeeen það er of margt til að fara að telja upp hér ;D Annars já... vinna og aftur vinna ;) vonandi frí mánudag og þriðjudag og svoo næstu helgi... PLÍS!!! (jább það er ekki komið vaktaplan ennþá!! fyrir næstu viku =@) þá ætla ég skoo að gera eitthvað fun... veit ekki hvað en... EITTHVAÐ...
Annars... er þetta rosalega innihaldslítið blogg... tattooið er að gróa... eða jáhh... ennþá er það nú bara að verða ógeðslegt en það fylgir víst ;D svoo grær það vonandi eftir það ;)
Mér leiðist... krakkarnir fóru öll í sund... og ég má ekki útaf tattooinu :(
en jáhh
hætt í bili... bæjj ;*

Thursday, June 19, 2008

Tattooið ;D

Vúpídúú... í dag kl 12:00 fórum við pabbi og fengum okkur tattoo ;D.. þvílíkur magafiðringur... ég get svo svarið það ;D.. amk þá byrjaði Jason, því tattooerarinn heitir það... á því að prennta út tattooið mitt í réttri stærð á kalkípappír og svoo bara var byrjað að permaneta myndina á mig ;D.. bjóst við miklu meiri sársauka, þetta var meira óþægilegt en vont, en júú... vont á köflum, ég ætla ekki að reyna að vera of mikil hetja ;D... Hann var eldsnöggur með mína mynd ;) enda var hún ekki mjög stór... og þá var komið að pabba, hann valdi sína mynd á staðnum, ég teiknaði mína í einhverjum leiðindar stærðfræðitíma... en hann valdi sér flotta tribal mynd (mynd fyrir neðan) ooog var Jason örlítið lengur með hana, enda stærri ;D en við feðgin löbbuðum út, klárlega helmingi svalari en þegar við löbbuðum þar inn ;D eða svo sagði Jason, maður verður bara að trúa því ;D

Eftir svölunaraðgerðina þá röllti ég um kringluna, keypti nauðsynjar og fór svo bara heim og naut þess að vera í fríi... síðan keyrðum við feðgin heim, komum við í Hyrnunni til a sýna listaverkin... held að faðir minn hafi farið 3svar úr jakkanum og brett upp skyrtuna til að sýna vinkonum mínum gæjjamerkið ;) enda enginn smá töffari <---- ;D;D

Annars er það bara vinna á mrgn.. jájájá ;) það verður ágjætt ;) ætlað drífa mig í háttinn til að vera fersk á mrgn ;)

Gn allesammen ;**

Tuesday, June 17, 2008

17. Júní!!

Vúhúúú... ég myndi sko klárlega syngja fyrir ykkur 17. júní lagið sem var sko blastað í græjjunum heima um hádegi í dag... ef ég væri ekki barasta hálf hás af helíum ;)
Jáhh þegar við Gunnar og Kata vorum loksins vöknuð eftir erfiða nótt ;'D og Kidda komin í bæjinn og allir reddy rölltum við niður göngugötu Reykjavíkur í dag, borðuðum bestu samloku sem ég hef smakkað ever!! Man bara ekki hvað staðurinn heitir skoh :O en allavegana geðveikt gott ;) svo var haldið lengra niður að miðbænum, fórum inní hljómskálagarð þar sem Kata var svo heppin að grípa SvampSveinson blöðru... hún var svo svöööl... og að sjálfsögðu stungum við röri í kvikindið og skemmtum okkur á strumparöddum ;D fjöööör ;)
Svo pikkuðum við upp fleirra fólk á leiðinni uppettir aftur, borðuðum á devitos og rölltum svo heim til mín þar sem ég steinsofnaði uppí rúmi og krakkarnir stungu af aftur niður á torg til að hlusta á tónleikana ;) ég bara nennti ekki með, var of þreytt... þau skemmtu sér ágjætlega held ég bara ;) ég kíkti aðeins á Beggann... sem var frekar veikur greyyið...:(
Tjahh... svooo er mrgn planið að fara austur... OF snemma... en jájá maður lifir það nú kannski af... Svooo er það TATTOO á fimmtudaginn... ohh hvað það er langþráður dagur...;D;D;D Ætli maður reyni svo ekki að koma mynd af kvikindinu inná síðuna fyrir ykkur að sjá :P
en jáhh þetta er ágjætt í dag, ætlað faraað drulla mér að sofa... er með hausverk... gaseytrun?? ;)

Lotta

Monday, June 16, 2008

GAS!!!

Helíum gas ;D;D;D ójáhh!! kúturinn var sko á sínum stað í mrgn þegar ég kom í vinnuna ;D;D og gerði daginn freeekar skemmtilegann ;D ásamt því að Bergvini tókst að fá mig lausa í vinnu á morgun svo ég er barasta á leiðinni til Reykjavíkur vonandi bara í kvöld!! til að taka þátt í 17. júní geðveikinni ;D vúpppííí ;)

Annars var lítið að gera í vinnunni, blöðrur útum allt og starfsfólk í góðu heliumgasstuði ;D Ég keypti stóóóóra superman blöðru svo við getum skemmt okkur svolítið í kvöld ;D

Skrifa meira á mrgn... ég hef svo lítið að segja

Lotta

Sunday, June 15, 2008

Ahh!!

.. Stundum vildi ég að ég gæti verið í sturtu allann daginn!!! það er svoooo gott!!! og eftir svona vinnudaga, shiiii, yndisleg stund ;D;D

Já ég semsagt sit hér, við tölvuna, nýsturtuð og vel ilmandi, þó ég sé enn með steikarilm fastan í nefhárunum!! þetta var klikkaður dagur, ungt fólkt sem streymdi frá Akureyrinni í dag!! og allir svangir, að sjálfsögðu!!
Ekkert eins skemmtilegt til að segja frá og í gær... höfðum engan tíma til að eignast "had to be there moment" í dag ;) of mikið að hugsa um að gera allt rétt og á sem stistum tíma!!

Á mrgn verð ég svo að vinna aftur, með Arnóri og ég bíst við Kalla... Er ekki alveg sátt við þetta vaktaplansskipulag!!! ARG!! það eina sem ég og Kristrún báðum um þegar við sóttum um í þessari vinnu var að vera settar saman á vaktir... og getið nú hvað Beggi Boss gerði?!?!?!... Hann setur okkur á SITTHVORA vaktina... og ég sem er að gera honum greiða með að mæta á aukavaktir!!! Piff!! það verður sko talað við hann á mrgn!!

Mér skilst að drengirnir hafi skemmt sér vel á bíladögum, fyrstu nóttina var tjaldað á HRINGTORGI... ójáhh!! sniðugt það... löggunni fannst það alveg pínu fyndið samt, skilst mér... En seinni nóttina var tjaldað inní garði hjá einhverju fólki.... það var nefnilega enginn heima sko, þannig það var alltílæi!!!.... Jáhh, ég held nú barasta að þeir hljóti að vera fegnir að ég hafi ekki komið með!! þá hefðum við ekki sofið neitt.. því engin staður hefði verið nógu "löglegur" fyrir mig ;D (ég er nú eiginlega líka fegin að ég fór ekki með, hefði sennilega ekki haft mikið gaman af þessum uppátækjum)...

En ég ætla að borða frönsku vöfluna sem móðir mín var svo góð að kaupa handa mér ;D;D og svo ætla ég líklegast bara að skríða uppí rúm og... sofna ;)

-Lotta

Saturday, June 14, 2008

Sooooo stupid!!!


Mohohoho ;D;D var að vafra netið og bara VAAARÐ... þetta er svooo mikið satt ;p

Vinnudagur!!

Já... Mætti eldhress í vinnunna í dag kl: 11, ásamt fögru fylgdarliði; Kiddu, Kötu og Láru!! Allar ferskar óóóó jáhh!!! Það var lítið sem ekkert að gera mestallann daginn svo maður var í hinu og þessu, takandi af brettum með 17. Júní dóti á... arg!! aðallega "partýsleikjóar"... sérstaklega gerðir fyrir daga eins og 17. júní!!! mæ ó mæ!!!... eða það var amk það sem ég hugsaði þangað til ég fann blöðrurnar!!!! ;D;D;D;D... því hvað fylgir með blöðrunum???? HELÍUM GAS!!!! Mohohohoho ;D við reyndar kunnum ekkert á gaskútinn svo við ákváðum að geima raddbreytingardjók þangað til á mánudaginn þegar við förum hvorteðer að fylla blöðrurnar ;D;D... og og og og... SVAMPURSVEINSON blöðrur voru í miklu magni í kassanum ;D;D;D... Ein sem er sko klárlega búin að finna blöðru ársins!!!
Vinnutími dagsins var annars óvenju skemmtilegur tími!!... Fólk á leið á Akureyri á bíladaga, misillahaldið af partýdjúsi!!... Tveir skemmtilegir kauðar (tjahh kauðar... bæði fallegir, flottir og myndarlegir karlkyns einstaklingar).... frekar drukknir amk annar þeirra og fóru sko aldeilis að spjalla við okkur... og við... Ég, Kidda og Kata... flissuðum eins og... mig langar að segja 12 ára... en ætli maður sé nokkuð ennþá kominn yfir flissaldurinn??... amk flissuðum meira og betur en venjulega af þessum stælum í drengjunum, sem elltu okkur inní eldhús, báðu um hveitihandaför á brjóstkassann (sem voru að vísu... mjög stæltir) ooooog ekki má gleyma símanúmerinu sem Katan var vinsamlegast beðin um... þegar leið svo á daginn fór síminn hennar að pípa og skemmtileg sms að byrtast... svo jáhh... gelgjuflipp í vinnunni??? ég held það nú!!!
Svo má ekki gleyma öllu þessu grumpy fólki sem heldur að maður geri ekkert allan liðlangan daginn en að gera líf þeirra eins ömurlegt og mööööögulegt er... Ohh hvað manni langar stundum að "missa" kvörtunarhamborgara í gólfið og nota "5 sekúndnaregluna".... GARG!!! en auðvitað... maður gerir ekki svoleiðis!!!!!
Og svo var það að sjálfögðu frönskuferðalagið okkar útí frystigám!! Ég held ég geti alveg fullyrt það að ég hafi aldrei skemmt mér jafn vel við að sækja frönskukassa :O:O... við semsagt héldum 4 útí stórafrystigám að sækja franskar fyrir morgundaginn... þar sem við búumst við slatta af fólki sem eru á leið heim, svangir!! af bíladögum... svo við ákveðum að sækja nú nóg af frönskum... Ekki nóg með að gámurinn sé mínus 30°c (auðvitað ekki svo kaldur en...), og við hlaupandi inn með tómar hendur og út með einn skitinn frönskukassa í einu... heldur voru 2 tegundir af helvítis frönskum!!!... og við föttuðum það að sjálfsögðu ekki fyrr en við vorum búnar að raða kössunum inní litla frysti!!! og á milli stóra útifrystisins og litla innifrystisin eru... ætla ég að giska á... einir 200 M... sem er frekar mikið þegar maður þarf að labba framm og til baka með mikið af frönskum eftir 12 tíma vakt!!!! En þetta tókst!! og við algerlega tilbúnar fyrir átök morgundagsins!!!

Núna... er ég hinsvegar komin heim, búin að skoða tölvupóst, tagged, myspace, msn... og alla aðra samskiptamöguleika sem ég kemst í sveitinni!!!, lykta eins og góður hamborgari, og nenni enganvegin að standa uppúr sófanum, í sturtu og svo að sofa... en hugsa samt að ég láti verða að því ;)

Eeeendilega skiljiðið eftir komment fyrir mig svo ég viti af ykkur þarna sem nennið enn að lesa blogg ;D

-Lotta

Friday, June 13, 2008

Í reykjavíkinni...

Já í gær ákvað ég að það væri kominn tími á Reykjavíkurferð svo ég og Kristrún skelltum okkur með 8 rútunni frá Borgarnesi og uppað göngum og vinur okkar í rútunni tók bara 500 kr fyrir það ;)... Auðvitað kom svo Daníel hinn heittelskaði að sækja okkur uppað göngum og við fórum á Skagann þar sem Kristrún varð eftir og hélt áfram með strætó til Reykjavíkur... KRÆST hvað það ískraði í heeelv... viftunni :@ En jáhh ég komst til Reykjavíkur og alla leið heim meiraðsegja!!
Þar biðu mín bróðir og mágkona, þvílíkt glöð að sjá mig... Höfðu saknað mín, enda ekki annað hægt ;D ooooog ég má ekki gleyma PAKKANUM!! sem beið á skrifborðinu mínu... vúhúhú!! Flottustu leggings ever í þeim pakka skoh!! og getiðið nú hvernig þær litu út....?!?!?!
Annars stoppaði ég stutt heima því Hjálmur vildi endilega rúnntast með mér í Reykjavíkinni og kom fljótlega eftir að ég var lennt í bænum... Við rúnntuðum og fengum okkur subway!! mmmm Subway!!! ;D;D fékk mér sko feitann bræðing með double sósu!!! mmmm Subway!!!... Svo kíktum við aðeins á Begga kallinn, þar á bæ sátu allir voða kósý og horfðu á Jay Lenno!! hvað annað...
Á leiðinni heim keyrðum við svo Grensásveginn og framhjá Sohosól!!.... og ég... sneri mig nánast úr hálsliðnum, eins og svo oft áður þegar ég var að tékka á honum Kalla mínum!! Og það var þá sem mér varð ljóst að ég er ennþá... BITUR!! Og það sem Hjálmur gat nú hlegið að mér!! það var ekkert lítið!!!

Í dag vaknaði ég SEEEEINT!! enda svaf ég í bestasta rúmi í heimi sem ég er búin að sakna mikið!! og fór í sturtu og skellti mér svo út að versla... Mohohoho!! langt síðan ég hef gert það... eða tjahh jáhh... svona næstum því mánuður :O witch iiiiis... mikið ;D
Var illilega farið að vannta gallabuxur! þar sem gallabuxurnar í fataskápunum ákváðu einhverrahlutavegna að gefast uppá mér á svipuðum tíma...! En það var ágjætt... þurfti að fara að finna mér almennilega afsökun fyrir að versla mér buxur...! ;D Enda keypti ég tvennar.. þær voru á svo hagstæðu verði sjáiðið til ;) og jáhh svo má ekki gleyma skónnum, sem voru EINMITT það sem ég var búin að vera að leita að ;D;D;D

Annars er ég komin í sveitina aftur... þvílík umferðartraffík á leiðinni útúr bænum.... shiiiii!! Allir á leið á bíladaga, nema ég... þar sem ég er "félagskúkur" (ásamt fleirru)... Eða það finnst strákunum mínum að minsta kosti ;) en þeir verða líklega fegnir að vera lausir við "mömmu" vinahópsins ;) vonandi að þeir skemmti sér eins vel án mín ;)
Ætla mér bara að vinna um helgina... vanntar klárlega fólk í þessa blessuðu Hyrnu! Fæ svo kannski frí 17. Júní í staðin, er svona að vona það... Nenni tæplega að vera vinna á þessum degi annað árið í röð...

Annars lítið, kannski maður kíki uppí húsafell í kvöld... Eitthvað bíladagabeildjamm skildist mér ;)
Þangað til næst, hafið það gott, njótið lífsins ;D

-Lotta

Thursday, June 12, 2008

Ég... ætlað að...

byrja að blogga aftur... jáhh kemur á óvart er það ekki?? allir hættir að blogga og þá byrtist ég, uppúr þurru og fer að blogga.
Ég veit ekki fullkomlega afhverju en það að blogga veitti mér einhverja útrás sem er ágjæt... svo ég er mest að blogga fyrir sjálfa mig, en ætli móðir mín verði ekki sú sem á eftir að lesa þetta mest, ég býst við því.
Þó ég sé að hugsa um að reyna að komast í bloggheiminn aftur þá er ég ekki að segja að ég ætli að blogga á hverjum degi bara til að segja ekkert... Neibb ég ætla nú bara að blogga þegar ég finn löngun til þess.

Það er ágjætis veður úti, fór samt í aðeins of lítið af fötum til að haldast lengi þar... Kannski ég ætti að drífa mig í meiri föt og hundskast út... sjáum nú til með það.
Ég er í fríi í vinnunni, þetta vaktarplan okkar er í endalausu klúðri, fékk t.d. sms í dag "vinna um helgina"... ein sem var sko klárlega sátt með að vera ekki að vinna um helgina og geta planað eitthvað annað... svo ég sendi þeim bara mjög vinsamlegt sms til baka um að því miður... ég væri bara búin að plana helgina í annað!!! Þjáist meiraðsegja af valkvíða hvað ég eigi nú eiginlega að gera af því sem er í boði.... í boði er:
1. Vera heima, hérna fyrir vestan, slappa af, hitta fólk, og bara njóta þess að vera uppí sveit!
2. Fara norður, bíladagar á Akureyri, verst hvað akureyringar eru ekki sáttir við ungt fólk þar sem þeir hafa lokað tjaldstæðum fyrir alla yngir en hvað.... 25 ára... já þakka þér fyrir!!!
3. Fara suður í Reykjavíkina... kominn tími til held ég!!
4. Fara austur á Hvolsvöll og vesenast með litlu grísunum mínum, Agnesi og Sigga ;)

Svooo eins og þið sjáið eru allir landshlutar í boði... bara spurning hvað maður á að gera af sér... Verð klárlega hress og kát á Akureyri ef ég fer þangað, geri nokkra skandala af mér, og guð má vita hvar ég sef!! Ef ég verð heima... gæti náttúrúlega eitthvað skemmtilegt gerst, eins og alltaf hérna í sveitinni.... ef ég fer í Reykjavík... gæti mér tekist að kaupa föt (þá helst gallabuxur sem ótrúlegt EN SATT mig bráðvanntar!!) oooog ég gæti farið Austur og verið uppáhaldsfrænka!! og það er nú ekkert leiðinlegt....
Enda líklega á að hringja uppí vinnu og segjast geta unnið!!! ooo Nei ;)

En jáhh... hugsa um að fara í örlítið meira af fötum og skella mér út í blíðuna, ekki veitir af að venja húðina við "allri þessari sól" áður en maður skellir sér til Krítar... hnjohnjohnjo!!! =D

-Lotta