Sunday, June 15, 2008

Ahh!!

.. Stundum vildi ég að ég gæti verið í sturtu allann daginn!!! það er svoooo gott!!! og eftir svona vinnudaga, shiiii, yndisleg stund ;D;D

Já ég semsagt sit hér, við tölvuna, nýsturtuð og vel ilmandi, þó ég sé enn með steikarilm fastan í nefhárunum!! þetta var klikkaður dagur, ungt fólkt sem streymdi frá Akureyrinni í dag!! og allir svangir, að sjálfsögðu!!
Ekkert eins skemmtilegt til að segja frá og í gær... höfðum engan tíma til að eignast "had to be there moment" í dag ;) of mikið að hugsa um að gera allt rétt og á sem stistum tíma!!

Á mrgn verð ég svo að vinna aftur, með Arnóri og ég bíst við Kalla... Er ekki alveg sátt við þetta vaktaplansskipulag!!! ARG!! það eina sem ég og Kristrún báðum um þegar við sóttum um í þessari vinnu var að vera settar saman á vaktir... og getið nú hvað Beggi Boss gerði?!?!?!... Hann setur okkur á SITTHVORA vaktina... og ég sem er að gera honum greiða með að mæta á aukavaktir!!! Piff!! það verður sko talað við hann á mrgn!!

Mér skilst að drengirnir hafi skemmt sér vel á bíladögum, fyrstu nóttina var tjaldað á HRINGTORGI... ójáhh!! sniðugt það... löggunni fannst það alveg pínu fyndið samt, skilst mér... En seinni nóttina var tjaldað inní garði hjá einhverju fólki.... það var nefnilega enginn heima sko, þannig það var alltílæi!!!.... Jáhh, ég held nú barasta að þeir hljóti að vera fegnir að ég hafi ekki komið með!! þá hefðum við ekki sofið neitt.. því engin staður hefði verið nógu "löglegur" fyrir mig ;D (ég er nú eiginlega líka fegin að ég fór ekki með, hefði sennilega ekki haft mikið gaman af þessum uppátækjum)...

En ég ætla að borða frönsku vöfluna sem móðir mín var svo góð að kaupa handa mér ;D;D og svo ætla ég líklegast bara að skríða uppí rúm og... sofna ;)

-Lotta

No comments: