byrja að blogga aftur... jáhh kemur á óvart er það ekki?? allir hættir að blogga og þá byrtist ég, uppúr þurru og fer að blogga.
Ég veit ekki fullkomlega afhverju en það að blogga veitti mér einhverja útrás sem er ágjæt... svo ég er mest að blogga fyrir sjálfa mig, en ætli móðir mín verði ekki sú sem á eftir að lesa þetta mest, ég býst við því.
Þó ég sé að hugsa um að reyna að komast í bloggheiminn aftur þá er ég ekki að segja að ég ætli að blogga á hverjum degi bara til að segja ekkert... Neibb ég ætla nú bara að blogga þegar ég finn löngun til þess.
Það er ágjætis veður úti, fór samt í aðeins of lítið af fötum til að haldast lengi þar... Kannski ég ætti að drífa mig í meiri föt og hundskast út... sjáum nú til með það.
Ég er í fríi í vinnunni, þetta vaktarplan okkar er í endalausu klúðri, fékk t.d. sms í dag "vinna um helgina"... ein sem var sko klárlega sátt með að vera ekki að vinna um helgina og geta planað eitthvað annað... svo ég sendi þeim bara mjög vinsamlegt sms til baka um að því miður... ég væri bara búin að plana helgina í annað!!! Þjáist meiraðsegja af valkvíða hvað ég eigi nú eiginlega að gera af því sem er í boði.... í boði er:
1. Vera heima, hérna fyrir vestan, slappa af, hitta fólk, og bara njóta þess að vera uppí sveit!
2. Fara norður, bíladagar á Akureyri, verst hvað akureyringar eru ekki sáttir við ungt fólk þar sem þeir hafa lokað tjaldstæðum fyrir alla yngir en hvað.... 25 ára... já þakka þér fyrir!!!
3. Fara suður í Reykjavíkina... kominn tími til held ég!!
4. Fara austur á Hvolsvöll og vesenast með litlu grísunum mínum, Agnesi og Sigga ;)
Svooo eins og þið sjáið eru allir landshlutar í boði... bara spurning hvað maður á að gera af sér... Verð klárlega hress og kát á Akureyri ef ég fer þangað, geri nokkra skandala af mér, og guð má vita hvar ég sef!! Ef ég verð heima... gæti náttúrúlega eitthvað skemmtilegt gerst, eins og alltaf hérna í sveitinni.... ef ég fer í Reykjavík... gæti mér tekist að kaupa föt (þá helst gallabuxur sem ótrúlegt EN SATT mig bráðvanntar!!) oooog ég gæti farið Austur og verið uppáhaldsfrænka!! og það er nú ekkert leiðinlegt....
Enda líklega á að hringja uppí vinnu og segjast geta unnið!!! ooo Nei ;)
En jáhh... hugsa um að fara í örlítið meira af fötum og skella mér út í blíðuna, ekki veitir af að venja húðina við "allri þessari sól" áður en maður skellir sér til Krítar... hnjohnjohnjo!!! =D
-Lotta
Thursday, June 12, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comments:
Mér finnst voða gaman þegar þú bloggar - og mundu svo að kvitta líka fyrir þig á blogginu mínu!
Post a Comment