Já í gær ákvað ég að það væri kominn tími á Reykjavíkurferð svo ég og Kristrún skelltum okkur með 8 rútunni frá Borgarnesi og uppað göngum og vinur okkar í rútunni tók bara 500 kr fyrir það ;)... Auðvitað kom svo Daníel hinn heittelskaði að sækja okkur uppað göngum og við fórum á Skagann þar sem Kristrún varð eftir og hélt áfram með strætó til Reykjavíkur... KRÆST hvað það ískraði í heeelv... viftunni :@ En jáhh ég komst til Reykjavíkur og alla leið heim meiraðsegja!!
Þar biðu mín bróðir og mágkona, þvílíkt glöð að sjá mig... Höfðu saknað mín, enda ekki annað hægt ;D ooooog ég má ekki gleyma PAKKANUM!! sem beið á skrifborðinu mínu... vúhúhú!! Flottustu leggings ever í þeim pakka skoh!! og getiðið nú hvernig þær litu út....?!?!?!
Annars stoppaði ég stutt heima því Hjálmur vildi endilega rúnntast með mér í Reykjavíkinni og kom fljótlega eftir að ég var lennt í bænum... Við rúnntuðum og fengum okkur subway!! mmmm Subway!!! ;D;D fékk mér sko feitann bræðing með double sósu!!! mmmm Subway!!!... Svo kíktum við aðeins á Begga kallinn, þar á bæ sátu allir voða kósý og horfðu á Jay Lenno!! hvað annað...
Á leiðinni heim keyrðum við svo Grensásveginn og framhjá Sohosól!!.... og ég... sneri mig nánast úr hálsliðnum, eins og svo oft áður þegar ég var að tékka á honum Kalla mínum!! Og það var þá sem mér varð ljóst að ég er ennþá... BITUR!! Og það sem Hjálmur gat nú hlegið að mér!! það var ekkert lítið!!!
Í dag vaknaði ég SEEEEINT!! enda svaf ég í bestasta rúmi í heimi sem ég er búin að sakna mikið!! og fór í sturtu og skellti mér svo út að versla... Mohohoho!! langt síðan ég hef gert það... eða tjahh jáhh... svona næstum því mánuður :O witch iiiiis... mikið ;D
Var illilega farið að vannta gallabuxur! þar sem gallabuxurnar í fataskápunum ákváðu einhverrahlutavegna að gefast uppá mér á svipuðum tíma...! En það var ágjætt... þurfti að fara að finna mér almennilega afsökun fyrir að versla mér buxur...! ;D Enda keypti ég tvennar.. þær voru á svo hagstæðu verði sjáiðið til ;) og jáhh svo má ekki gleyma skónnum, sem voru EINMITT það sem ég var búin að vera að leita að ;D;D;D
Annars er ég komin í sveitina aftur... þvílík umferðartraffík á leiðinni útúr bænum.... shiiiii!! Allir á leið á bíladaga, nema ég... þar sem ég er "félagskúkur" (ásamt fleirru)... Eða það finnst strákunum mínum að minsta kosti ;) en þeir verða líklega fegnir að vera lausir við "mömmu" vinahópsins ;) vonandi að þeir skemmti sér eins vel án mín ;)
Ætla mér bara að vinna um helgina... vanntar klárlega fólk í þessa blessuðu Hyrnu! Fæ svo kannski frí 17. Júní í staðin, er svona að vona það... Nenni tæplega að vera vinna á þessum degi annað árið í röð...
Annars lítið, kannski maður kíki uppí húsafell í kvöld... Eitthvað bíladagabeildjamm skildist mér ;)
Þangað til næst, hafið það gott, njótið lífsins ;D
-Lotta
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment