Saturday, June 14, 2008

Vinnudagur!!

Já... Mætti eldhress í vinnunna í dag kl: 11, ásamt fögru fylgdarliði; Kiddu, Kötu og Láru!! Allar ferskar óóóó jáhh!!! Það var lítið sem ekkert að gera mestallann daginn svo maður var í hinu og þessu, takandi af brettum með 17. Júní dóti á... arg!! aðallega "partýsleikjóar"... sérstaklega gerðir fyrir daga eins og 17. júní!!! mæ ó mæ!!!... eða það var amk það sem ég hugsaði þangað til ég fann blöðrurnar!!!! ;D;D;D;D... því hvað fylgir með blöðrunum???? HELÍUM GAS!!!! Mohohohoho ;D við reyndar kunnum ekkert á gaskútinn svo við ákváðum að geima raddbreytingardjók þangað til á mánudaginn þegar við förum hvorteðer að fylla blöðrurnar ;D;D... og og og og... SVAMPURSVEINSON blöðrur voru í miklu magni í kassanum ;D;D;D... Ein sem er sko klárlega búin að finna blöðru ársins!!!
Vinnutími dagsins var annars óvenju skemmtilegur tími!!... Fólk á leið á Akureyri á bíladaga, misillahaldið af partýdjúsi!!... Tveir skemmtilegir kauðar (tjahh kauðar... bæði fallegir, flottir og myndarlegir karlkyns einstaklingar).... frekar drukknir amk annar þeirra og fóru sko aldeilis að spjalla við okkur... og við... Ég, Kidda og Kata... flissuðum eins og... mig langar að segja 12 ára... en ætli maður sé nokkuð ennþá kominn yfir flissaldurinn??... amk flissuðum meira og betur en venjulega af þessum stælum í drengjunum, sem elltu okkur inní eldhús, báðu um hveitihandaför á brjóstkassann (sem voru að vísu... mjög stæltir) ooooog ekki má gleyma símanúmerinu sem Katan var vinsamlegast beðin um... þegar leið svo á daginn fór síminn hennar að pípa og skemmtileg sms að byrtast... svo jáhh... gelgjuflipp í vinnunni??? ég held það nú!!!
Svo má ekki gleyma öllu þessu grumpy fólki sem heldur að maður geri ekkert allan liðlangan daginn en að gera líf þeirra eins ömurlegt og mööööögulegt er... Ohh hvað manni langar stundum að "missa" kvörtunarhamborgara í gólfið og nota "5 sekúndnaregluna".... GARG!!! en auðvitað... maður gerir ekki svoleiðis!!!!!
Og svo var það að sjálfögðu frönskuferðalagið okkar útí frystigám!! Ég held ég geti alveg fullyrt það að ég hafi aldrei skemmt mér jafn vel við að sækja frönskukassa :O:O... við semsagt héldum 4 útí stórafrystigám að sækja franskar fyrir morgundaginn... þar sem við búumst við slatta af fólki sem eru á leið heim, svangir!! af bíladögum... svo við ákveðum að sækja nú nóg af frönskum... Ekki nóg með að gámurinn sé mínus 30°c (auðvitað ekki svo kaldur en...), og við hlaupandi inn með tómar hendur og út með einn skitinn frönskukassa í einu... heldur voru 2 tegundir af helvítis frönskum!!!... og við föttuðum það að sjálfsögðu ekki fyrr en við vorum búnar að raða kössunum inní litla frysti!!! og á milli stóra útifrystisins og litla innifrystisin eru... ætla ég að giska á... einir 200 M... sem er frekar mikið þegar maður þarf að labba framm og til baka með mikið af frönskum eftir 12 tíma vakt!!!! En þetta tókst!! og við algerlega tilbúnar fyrir átök morgundagsins!!!

Núna... er ég hinsvegar komin heim, búin að skoða tölvupóst, tagged, myspace, msn... og alla aðra samskiptamöguleika sem ég kemst í sveitinni!!!, lykta eins og góður hamborgari, og nenni enganvegin að standa uppúr sófanum, í sturtu og svo að sofa... en hugsa samt að ég láti verða að því ;)

Eeeendilega skiljiðið eftir komment fyrir mig svo ég viti af ykkur þarna sem nennið enn að lesa blogg ;D

-Lotta

1 comment:

Helga said...

Hæ sæta :*
Gaman að sjá svona langt blogga hjá þér ;) Það er gott að þið stelpurnar skemmtið ykkur í vinnunni ;) og maður kemst ALDREI yfir þessa blessuðu gelgju fyrr en maður er svona 20-25 ára!!! Farðu vel með þig dúlla :*

Helga og Alex ;)