Tuesday, July 8, 2008

Lets dance, what a weekend, what the night is all about...

Úff jáhh!!! Góð helgi verð ég nú að segja... meiraðsegja löng helgi... alveg síðan á miðvikudaginn er búið að vera djammað og djúsað útí eitt og verð nú bara að segja skemmtilegustu fyllerí sem sögur fara af... tjahh eða ætti ég að segja skemmtilegasta? það er ágjætis spurning ;D
Ég að minstakosti tók allann gærdaginn í það að jafna mig, fram að hádegi í dag og er núna svona að skríða saman, enda ekki hægt að vera með aumingjaskap uppí rúmi í svona veðri!!!! úff púff púff!!! Núna trúi ég því sko að sumarið sé komið á eyrina... Bongó blíða í allann dag og tanið var vörkað í drasl!!! Svo skellti maður sér uppí Lundareykjadalinn og reið út í góða veðrinu... mmm hvað hestar, gott veður og lundareykjadalurinn er góóóóð blanda... Ég kvarta eeenganvegin!

Merkilegt hvað maður getur verið einstaklega orðheppinn, svo orðheppinn að fólk algerlega misskilji mann, blaðri því í annað fólk, og það fólk svoleiðis hrauni yfir mann að maður bara skilur ekki hvernig einhver getur haft þvílíkann viðbjóð á manni... Þetta tókst mér... úffúffúff... maður verður að fara að passa hvað maður segir og við hvern maður segir það... það eru greinilega ekki allir að fylgjast með því sem maður segir... en mikið er gott að fólk losar um og segir við mann hvað því finnst raunverulega um mann... Alltaf gott að vita hverjir eru ekta og hverjir ekki...

Heyrði í fólki áðan sem mig er lengi búið að vanta að heyra frá... mikið var það gott, it just made my day!!! Merkilegt hvað litlir hlutir geta fengið mann til að skrækja úr kátínu... Merkilegt svo aftur á móti hvað þarf litla hluti til að gera mann alveg snælduvitlausann... en ég fer að minstakosti sátt að sofa á eftir.... :) þetta var góður dagur, ég er innilega sátt!!

Svo er bara frí á mrgn, taka hann með ró, njóta blíðunnar... Kenna Alin (Rúmenska gaurnum hans Gunnars) 5 íslens orð ;'D kellann er klár að koma sér í alskonar hluti... Vinna svo miðvikudag og fimmtudag og svoo er aftur komið helgarfrí... ohh hvað ég ætla að gera eitthvað stórskemmtilegt... eins og að.. Sofa, slappa af, borða óhollt, vera í tölvunni... ;D;D já eitthvað svona sem maður gerir ekki venjulega, alltaf gaman...
Þreytan er annars farin að láta á sér kræla, svo ætla að fara að sinna henni... nóg í bili

Góða nótt

~Lotta

1 comment:

Anonymous said...

Þú varst allavega veeel hress þegar ég hitti þig á laugardagsnóttinni :')
piff minns er líka í fríi á morgun og mér finnst að þú ættir að vera í bænum til þess að láta þér leiðast með mér og fara í kringluna !
en annars magnað blogg
loveyou :D:*
-Venný