... Jáh! Ég er ekki ánægð með frammistöðu lífsins síðasta sólahringinn!!... Hver er eiginlega tilgangurinn í því að skapa einstakling sem er svona líka vel heppnaður, það litla sem ég þekkti hann, og taka hann svo burtu þegar lífið er rétt að verða skemmtilegt!!! Þetta er svo óendnalega óréttlátt að ég tárast bara!! :(
Bjarni Páll Kristjánsson lést að morgni þriðjudagsins 15 júlí... Hann var búinn að berjast við krabbamein og hafði óendnalega trú á sjáfum sér, en svona fór það...
Eins og ég sagði þá þekti ég Bjarna ekki mikið en samt finnst mér eins og ég hafi misst eitthvað, líklega vegna þess að alltaf þegar maður hitti Bjarna á göngunum í MH var manni heilsað og hann var alltaf svo hress! Hann hafði einstakt lag á að gera grín að öllu saman og ég man sérstaklega eftir því þegar hann sagði við okkur á skátaborðinu á miðgarði "I got the golden ticket" þar sem að hann var greindur með krabbamein og taldi sig þá geta komist upp með hvað sem er...
Bjarni, ég vona innilega að þú hafir það betra hvar sem þú ert staddur! ég votta fjölskyldu og vinum mína dýpstu samúð...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment