Tuesday, September 9, 2008

Heimsendir?? 2

Ef ég á að segja eins og er... þá er ég búin að velta þessu með heimsendinn ótrúlega mikið fyrir mér... og lennti í góðu spjalli um hann við vin minn í gærkvöldi... Okkur finnst báðum að ólíklegt sé að um heimsendi sé að ræða, en samt fær maður svona brjálæðislhláturs tilfinningu ef maður fer virkilega að ýminda sér hluti sem gæti verið....
Ef ég til að mynda væri vísindamaður sem væri búin að undirbúa þennan dag allann minn vinnuferil, kannski 40 ár?? og loksins væri komið að þessu og ég vissi að það væri 50% líkur á að tilraunin mín myndi heppnast og þetta yrði rosalega kúl og 50% líkur á að hún myndi misheppnast og jörðin myndi farast, þá væri ég samt tilí að leggja líf mitt að veði fyrir það... og jafnvel jóns útí bæ líka :O það skipti hvorteðer ekki máli ef við myndum deyja... og hversvegna að auglýsa það fyrir fólki? það myndi bara skapa öngþveiti... og svo myndi allt heppnast og fólk ennþá í lífshræðslupanikk... En já úff ég ætla bara að reyna að pæla sem minnst í þessu... helst vildi ég bara að ég þyrfti ekki að vita af þessu fyrr en þetta væri heppnað og þá gæti ég bara gargað VÁÁ yfir öllum þessum uppgötvunum... en í staðin velti ég þessu fyrir mér við vini mína....
Aðrir vinir og félagar sem hafa fengið sama brjálæðishláturs fílinginn og ég... hafa farið að segja hluti til að hreynsa samvisku sína... ég hef tildæmis á síðasta sólahringnum fengið ótrúlega margar viðurkenningar á hrifningu til mín... ekki það að mér finnist það neitt leiðinlegt... en maður finnir fyirr þessum kaldhæðnishrolli sem er í fólki... ég veit ekki hvort því finnst þetta bara alveg fáránlega bjánalegt, þetta með heimsendis yfirlýsinguna eða þeir eru bara smeikir við þetta...? sjálf veit ég ekki alveg hvar á skalanum ég stend.. hugsa svona mitt á milli... og mér finnst skemmtilega skrýtið að það sé ekki bara einfaldlega búið að hafa fræðsluþátt fyrir heimsbyggðina til að úskýra þessa tilraun og staðfestingu á því að "hey þetta verður alltílæi... það gerist ekkert!"...
það sem á samt eftir að gera áður en heimsendir verður, hvort sem það er á morgun eða seinna:

BUSA 1 ÁRS NEMA MH!!

Þessvegna ætla ég að vakna hress og kát á mrgn... Og nýðast á samnemendum mínum sem lenntu í þeirri aðstöðu að vera yngri en ég :)... Ætli ég djammi svo ekki með þeim um kvöldið á brodway?? Og ef ég vakna á fimmtudaginn... þá veit ég að allt fór vel ;)

Annars ætla ég bara að halda áfram að vera hress og kát, njóta þess í botn að vera til og gera nákvæmlega það sem mig langar til, innan velsæmismarka ;)

Lotta

Heimsendir??

Hvernig undirbýr maður sig undir suma hluti? sem maður hvorki veit hvenær maður á að búast við eða hvernig þeir koma fram eða hvenær?? Suma hluti veit ég bara ekki... Ég er ekki súperman, né Njáll úr fornbókmenntum... En ég veit samt alveg sumt... Ég veit tildæmis að ég á frábæra fjölskyldu sem hjálpa mér í gegnum allt, ég veit ég á líka æðislega vini og alveg FULLT af þeim sem myndu gera allt fyrir mig, yndislegan danskan vin sem ég er ógeðslega skotin í... en ég veit ekki hvað sumt af þessu endist lengi.. og ég veit ekki hvernig maður undirbýr sig undir það...;S hugsanlega er líklegast að fjölskyldan mín endist í gegnum trúlegustu og ótrúlegustu hluti, vinir manns gætu alltíeinu pakkað saman... fengið nóg... og "kærastar" þeir hafa hingaðtil verið frekar stutt í mínu lífi... En ég veit það samt aldrei fyrirfram...
Í dag var mér dömpað af mjög góðum vini mínum, hann einfaldlega sagðist ekki meika lengur að vera bara vinur minn, væri búinn að vera hrifinn af mér of lengi til að þola það og það væri best að við myndum algerlega hætta að tala saman!! ALDREI hefði mér dottið í hug að hann myndi gera það :S aldrei... svo var hann farinn... eins og hann hefði aldrei verið til... það er ekkert gott, en þú lærir að lifa með því.... eins með danska vin minn... sennilega betur þektur sem "danski kærastinn hennar Lottu"... horfum á það með pínu raunsæi... Hann er sjóhermaður... og þar að auki danskur... hverjar eru líkurnar á því að það gangi nokkurtíman?? reyndar held ég að þetta sé lengsta "dúllerí" before sex hjá mér... og í fyrsta sinn sem ég er bara pritty sátt með að vera ekki facetoface alla daga alltaf... en samt... ef maður pælir í því... hvað veit ég svosem um hann? ætli hann eigi konu í hverri höfn? hann er sailer... Það myndi alveg ganga upp :O...
og hvað með Heimsendinn.. sem er spáð á Miðvikudaginn?? Hvað er fólk að spá...?? Ég hef ekki hugmynd um það útá hvað þessi tilraun gengur, nema það að vísindamenn ætla að reyna að framkvæma hvellinn sem varð til þess að heimurinn varð til... KRÍPÍ??? mér finnst það..:S ótrúlega... Ég veit ekki hvort eitthvað alvarlegt gerist... en ef?? Ég vil ekki hafa neina ákveðna, staðfesta skoðun á þessu... Hausinn á mér segir mér að vera hrædd við þetta... en skinsemin vildi óska að sá vísindamður (brjálæðingur) sem ætlar sér að framkvæma þetta myndi veskú standa upp fyrir alheimi og segja honum hvað hann ætlar að gera og útskýra hvernig þetta virki og segja jafnframt frá því að það.... MUNI EKKERT ALVARLEGT GERAST!!.... það er ekki nóg að segja bara "hey fóks!! það gerist ekki!"... ég vil vita hvernig þú veist það!! :O

Ég náði ekki fullkomlega að koma þessum pælingum mínum skýrum fram... sumir kannski botna eitthvað í þessu hjá mér.... aðrir bara eeenganvegin :) ef það les þetta þá einhver?? Mamma kanski :)

Lotta