Ef ég til að mynda væri vísindamaður sem væri búin að undirbúa þennan dag allann minn vinnuferil, kannski 40 ár?? og loksins væri komið að þessu og ég vissi að það væri 50% líkur á að tilraunin mín myndi heppnast og þetta yrði rosalega kúl og 50% líkur á að hún myndi misheppnast og jörðin myndi farast, þá væri ég samt tilí að leggja líf mitt að veði fyrir það... og jafnvel jóns útí bæ líka :O það skipti hvorteðer ekki máli ef við myndum deyja... og hversvegna að auglýsa það fyrir fólki? það myndi bara skapa öngþveiti... og svo myndi allt heppnast og fólk ennþá í lífshræðslupanikk... En já úff ég ætla bara að reyna að pæla sem minnst í þessu... helst vildi ég bara að ég þyrfti ekki að vita af þessu fyrr en þetta væri heppnað og þá gæti ég bara gargað VÁÁ yfir öllum þessum uppgötvunum... en í staðin velti ég þessu fyrir mér við vini mína....
Aðrir vinir og félagar sem hafa fengið sama brjálæðishláturs fílinginn og ég... hafa farið að segja hluti til að hreynsa samvisku sína... ég hef tildæmis á síðasta sólahringnum fengið ótrúlega margar viðurkenningar á hrifningu til mín... ekki það að mér finnist það neitt leiðinlegt... en maður finnir fyirr þessum kaldhæðnishrolli sem er í fólki... ég veit ekki hvort því finnst þetta bara alveg fáránlega bjánalegt, þetta með heimsendis yfirlýsinguna eða þeir eru bara smeikir við þetta...? sjálf veit ég ekki alveg hvar á skalanum ég stend.. hugsa svona mitt á milli... og mér finnst skemmtilega skrýtið að það sé ekki bara einfaldlega búið að hafa fræðsluþátt fyrir heimsbyggðina til að úskýra þessa tilraun og staðfestingu á því að "hey þetta verður alltílæi... það gerist ekkert!"...
það sem á samt eftir að gera áður en heimsendir verður, hvort sem það er á morgun eða seinna:
BUSA 1 ÁRS NEMA MH!!
Þessvegna ætla ég að vakna hress og kát á mrgn... Og nýðast á samnemendum mínum sem lenntu í þeirri aðstöðu að vera yngri en ég :)... Ætli ég djammi svo ekki með þeim um kvöldið á brodway?? Og ef ég vakna á fimmtudaginn... þá veit ég að allt fór vel ;)
Annars ætla ég bara að halda áfram að vera hress og kát, njóta þess í botn að vera til og gera nákvæmlega það sem mig langar til, innan velsæmismarka ;)
Lotta

No comments:
Post a Comment