Tuesday, September 9, 2008

Heimsendir?? 2

Ef ég á að segja eins og er... þá er ég búin að velta þessu með heimsendinn ótrúlega mikið fyrir mér... og lennti í góðu spjalli um hann við vin minn í gærkvöldi... Okkur finnst báðum að ólíklegt sé að um heimsendi sé að ræða, en samt fær maður svona brjálæðislhláturs tilfinningu ef maður fer virkilega að ýminda sér hluti sem gæti verið....
Ef ég til að mynda væri vísindamaður sem væri búin að undirbúa þennan dag allann minn vinnuferil, kannski 40 ár?? og loksins væri komið að þessu og ég vissi að það væri 50% líkur á að tilraunin mín myndi heppnast og þetta yrði rosalega kúl og 50% líkur á að hún myndi misheppnast og jörðin myndi farast, þá væri ég samt tilí að leggja líf mitt að veði fyrir það... og jafnvel jóns útí bæ líka :O það skipti hvorteðer ekki máli ef við myndum deyja... og hversvegna að auglýsa það fyrir fólki? það myndi bara skapa öngþveiti... og svo myndi allt heppnast og fólk ennþá í lífshræðslupanikk... En já úff ég ætla bara að reyna að pæla sem minnst í þessu... helst vildi ég bara að ég þyrfti ekki að vita af þessu fyrr en þetta væri heppnað og þá gæti ég bara gargað VÁÁ yfir öllum þessum uppgötvunum... en í staðin velti ég þessu fyrir mér við vini mína....
Aðrir vinir og félagar sem hafa fengið sama brjálæðishláturs fílinginn og ég... hafa farið að segja hluti til að hreynsa samvisku sína... ég hef tildæmis á síðasta sólahringnum fengið ótrúlega margar viðurkenningar á hrifningu til mín... ekki það að mér finnist það neitt leiðinlegt... en maður finnir fyirr þessum kaldhæðnishrolli sem er í fólki... ég veit ekki hvort því finnst þetta bara alveg fáránlega bjánalegt, þetta með heimsendis yfirlýsinguna eða þeir eru bara smeikir við þetta...? sjálf veit ég ekki alveg hvar á skalanum ég stend.. hugsa svona mitt á milli... og mér finnst skemmtilega skrýtið að það sé ekki bara einfaldlega búið að hafa fræðsluþátt fyrir heimsbyggðina til að úskýra þessa tilraun og staðfestingu á því að "hey þetta verður alltílæi... það gerist ekkert!"...
það sem á samt eftir að gera áður en heimsendir verður, hvort sem það er á morgun eða seinna:

BUSA 1 ÁRS NEMA MH!!

Þessvegna ætla ég að vakna hress og kát á mrgn... Og nýðast á samnemendum mínum sem lenntu í þeirri aðstöðu að vera yngri en ég :)... Ætli ég djammi svo ekki með þeim um kvöldið á brodway?? Og ef ég vakna á fimmtudaginn... þá veit ég að allt fór vel ;)

Annars ætla ég bara að halda áfram að vera hress og kát, njóta þess í botn að vera til og gera nákvæmlega það sem mig langar til, innan velsæmismarka ;)

Lotta

Heimsendir??

Hvernig undirbýr maður sig undir suma hluti? sem maður hvorki veit hvenær maður á að búast við eða hvernig þeir koma fram eða hvenær?? Suma hluti veit ég bara ekki... Ég er ekki súperman, né Njáll úr fornbókmenntum... En ég veit samt alveg sumt... Ég veit tildæmis að ég á frábæra fjölskyldu sem hjálpa mér í gegnum allt, ég veit ég á líka æðislega vini og alveg FULLT af þeim sem myndu gera allt fyrir mig, yndislegan danskan vin sem ég er ógeðslega skotin í... en ég veit ekki hvað sumt af þessu endist lengi.. og ég veit ekki hvernig maður undirbýr sig undir það...;S hugsanlega er líklegast að fjölskyldan mín endist í gegnum trúlegustu og ótrúlegustu hluti, vinir manns gætu alltíeinu pakkað saman... fengið nóg... og "kærastar" þeir hafa hingaðtil verið frekar stutt í mínu lífi... En ég veit það samt aldrei fyrirfram...
Í dag var mér dömpað af mjög góðum vini mínum, hann einfaldlega sagðist ekki meika lengur að vera bara vinur minn, væri búinn að vera hrifinn af mér of lengi til að þola það og það væri best að við myndum algerlega hætta að tala saman!! ALDREI hefði mér dottið í hug að hann myndi gera það :S aldrei... svo var hann farinn... eins og hann hefði aldrei verið til... það er ekkert gott, en þú lærir að lifa með því.... eins með danska vin minn... sennilega betur þektur sem "danski kærastinn hennar Lottu"... horfum á það með pínu raunsæi... Hann er sjóhermaður... og þar að auki danskur... hverjar eru líkurnar á því að það gangi nokkurtíman?? reyndar held ég að þetta sé lengsta "dúllerí" before sex hjá mér... og í fyrsta sinn sem ég er bara pritty sátt með að vera ekki facetoface alla daga alltaf... en samt... ef maður pælir í því... hvað veit ég svosem um hann? ætli hann eigi konu í hverri höfn? hann er sailer... Það myndi alveg ganga upp :O...
og hvað með Heimsendinn.. sem er spáð á Miðvikudaginn?? Hvað er fólk að spá...?? Ég hef ekki hugmynd um það útá hvað þessi tilraun gengur, nema það að vísindamenn ætla að reyna að framkvæma hvellinn sem varð til þess að heimurinn varð til... KRÍPÍ??? mér finnst það..:S ótrúlega... Ég veit ekki hvort eitthvað alvarlegt gerist... en ef?? Ég vil ekki hafa neina ákveðna, staðfesta skoðun á þessu... Hausinn á mér segir mér að vera hrædd við þetta... en skinsemin vildi óska að sá vísindamður (brjálæðingur) sem ætlar sér að framkvæma þetta myndi veskú standa upp fyrir alheimi og segja honum hvað hann ætlar að gera og útskýra hvernig þetta virki og segja jafnframt frá því að það.... MUNI EKKERT ALVARLEGT GERAST!!.... það er ekki nóg að segja bara "hey fóks!! það gerist ekki!"... ég vil vita hvernig þú veist það!! :O

Ég náði ekki fullkomlega að koma þessum pælingum mínum skýrum fram... sumir kannski botna eitthvað í þessu hjá mér.... aðrir bara eeenganvegin :) ef það les þetta þá einhver?? Mamma kanski :)

Lotta

Thursday, July 17, 2008

Whatever I feel like... GOSH!!

Það sem ég vildi sagt hafa... það sem ég meina er... ohh ég er með eitthvað svona... bíómyndathing í hausnum... fæ alskonar frasa uppí hausinn og endurtek þá nokkrum sinnum ;D frekar skemmtilegt fyrir mig... ekki eins fyrir fólk sem er í kringum mig :)...

Í gær var samt fleirra sem ég vildi segja ykkur frá... það bara datt allt út þegar ég las bloggið hans Bjarna Páls og sá þessar fréttir... ég er ennþá grautfúl :( en hér er ég komin aftur og man eitthvað af því sem ég hafði að segja, aðallega um síðustu helgi ;)

Síðustu helgi var ég ss í bænum... á föstudagskveldið komu strákarnir heim til mín... hlustuðum á músík og þeir sátu og lásu bók... þeim var boðið í partý sem varð að.... none partý því þeir eru kúkalabbar ;D En svo komu Venný og Sólveig og Helga og við rölltum niðrí bæj og partýuðumst ;D fórum á Organ og hittum þar 3 fulla dani sem keyptu handa okkur áfengi þar sem að ég... segi við þá að við munum ekki búa til neitt partý nema við fáum eitthvað að drekka.. og auðvitað var því sinnt ;) og svo þurfti ekki annað en að leyfa þeim að vera með í okkar djammi og þá... Tadamm!! voru keyptir fleirri drykkir, sem voru ekki fáir (A)... annað sem gerðist það kvöld, er frekar óskýrt og það sem skiptir máli er að það var drullu GAMAN!! ;D
Á laugardaginn var svo tekin örlítil þynnka, borðaður ágjætur matur sem ég fór og keypti útí nóatúni ;), hlustað á rólega músík... og slappað af þangað til kl var 4 og ég fór í kópavoginn að passa fyrir Sössu vinkonu MD... Vá hvað hún á yndisleg börn ;D mestu krútt veraldar :) við skemmtum okkur ágjætlega við að horfá Tobba Togvagn (fyrirgefið mér ef ég er ekki með nafnið rétt :S).. var að passa til sirka... 11... donno kannski hálf 12... sofnaði í sófanum eftir að strákarnir voru farnir að sofa... þá fékk ég skutl heim og þá voru Óskar og Sylvía sko mætt í djammgírnum... og við skelltum okkur niðrí bæj um 2 leitið þegar allir voru orðnir temmilega hressir og komnir í djammgallann ;D og þvílíkt hvöld :D hehehe ;D þetta var rosalega gaman :) löbbuðum stað frá stað (ég alltaf trúlofuð óskari, eða við það að pissa í buxurnar til að komast inn) og jámm það var frekar skemmtilegt (eða kannski var ég bara svona drukkin) Hehehe :D amk mikið fjör, mikið gaman ;) svo þegar allir voru orðnir góðir drulluðum við okkur heim :) síðan bara.. man ég lítið... ég amk komst ekki upp í rúmið sem ég ætlaði að sofa í... og mín síðustu orð voru "ég æli aldrei, ég verð aldrei þunn"... úff... gleymdi víst að slá í timbur þarna og garga 7,9,13... því bæði gerðist og ein ógeðslegasta bílferð mín hófst daginn eftir... þar sem ég kúrði í minnsta aftursæti í heimi!!! Audinn hans Óskars er flottur... en það er lítið pláss fyrir aukafarþega ;) En þar sat ég í klt borðandi kfc-inn minn... svo ég gæti ætlt einhverju ef það skildi koma uppá... Hehhh ;D;D svona djamm verður tekið við fyrsta tækifæri aftur!!!!

Vinna á Mánudag, Þriðjduag... ágjætt... lítið að gera, Kiddan mín loksins komin yfir á mína vakt, svo þið getið ýmindað ykkur hversu gaman það er hjá okkur ;D;D... Frí í gær og í dag, fór á hestbak, slakaði á, hitti fólk, bakaði köku, fór í sund... FYRIR HÁDEGI!!! úff það hefði ég reyndar ekki átt að gera því ég er búin að sofa síðan, mikið rosalega verður maður þreyttur af því að slaka á í sundlaugum :) Svo er bara vinna aaaaalla helgina... FÓLK... veriðið heima og eldiði sjálf!! :D "I wouldnt do it in a situation like that!... GOSH"

See you later ;)
-Lotta

Wednesday, July 16, 2008

Ohh!!

... Jáh! Ég er ekki ánægð með frammistöðu lífsins síðasta sólahringinn!!... Hver er eiginlega tilgangurinn í því að skapa einstakling sem er svona líka vel heppnaður, það litla sem ég þekkti hann, og taka hann svo burtu þegar lífið er rétt að verða skemmtilegt!!! Þetta er svo óendnalega óréttlátt að ég tárast bara!! :(
Bjarni Páll Kristjánsson lést að morgni þriðjudagsins 15 júlí... Hann var búinn að berjast við krabbamein og hafði óendnalega trú á sjáfum sér, en svona fór það...
Eins og ég sagði þá þekti ég Bjarna ekki mikið en samt finnst mér eins og ég hafi misst eitthvað, líklega vegna þess að alltaf þegar maður hitti Bjarna á göngunum í MH var manni heilsað og hann var alltaf svo hress! Hann hafði einstakt lag á að gera grín að öllu saman og ég man sérstaklega eftir því þegar hann sagði við okkur á skátaborðinu á miðgarði "I got the golden ticket" þar sem að hann var greindur með krabbamein og taldi sig þá geta komist upp með hvað sem er...
Bjarni, ég vona innilega að þú hafir það betra hvar sem þú ert staddur! ég votta fjölskyldu og vinum mína dýpstu samúð...

Tuesday, July 8, 2008

Lets dance, what a weekend, what the night is all about...

Úff jáhh!!! Góð helgi verð ég nú að segja... meiraðsegja löng helgi... alveg síðan á miðvikudaginn er búið að vera djammað og djúsað útí eitt og verð nú bara að segja skemmtilegustu fyllerí sem sögur fara af... tjahh eða ætti ég að segja skemmtilegasta? það er ágjætis spurning ;D
Ég að minstakosti tók allann gærdaginn í það að jafna mig, fram að hádegi í dag og er núna svona að skríða saman, enda ekki hægt að vera með aumingjaskap uppí rúmi í svona veðri!!!! úff púff púff!!! Núna trúi ég því sko að sumarið sé komið á eyrina... Bongó blíða í allann dag og tanið var vörkað í drasl!!! Svo skellti maður sér uppí Lundareykjadalinn og reið út í góða veðrinu... mmm hvað hestar, gott veður og lundareykjadalurinn er góóóóð blanda... Ég kvarta eeenganvegin!

Merkilegt hvað maður getur verið einstaklega orðheppinn, svo orðheppinn að fólk algerlega misskilji mann, blaðri því í annað fólk, og það fólk svoleiðis hrauni yfir mann að maður bara skilur ekki hvernig einhver getur haft þvílíkann viðbjóð á manni... Þetta tókst mér... úffúffúff... maður verður að fara að passa hvað maður segir og við hvern maður segir það... það eru greinilega ekki allir að fylgjast með því sem maður segir... en mikið er gott að fólk losar um og segir við mann hvað því finnst raunverulega um mann... Alltaf gott að vita hverjir eru ekta og hverjir ekki...

Heyrði í fólki áðan sem mig er lengi búið að vanta að heyra frá... mikið var það gott, it just made my day!!! Merkilegt hvað litlir hlutir geta fengið mann til að skrækja úr kátínu... Merkilegt svo aftur á móti hvað þarf litla hluti til að gera mann alveg snælduvitlausann... en ég fer að minstakosti sátt að sofa á eftir.... :) þetta var góður dagur, ég er innilega sátt!!

Svo er bara frí á mrgn, taka hann með ró, njóta blíðunnar... Kenna Alin (Rúmenska gaurnum hans Gunnars) 5 íslens orð ;'D kellann er klár að koma sér í alskonar hluti... Vinna svo miðvikudag og fimmtudag og svoo er aftur komið helgarfrí... ohh hvað ég ætla að gera eitthvað stórskemmtilegt... eins og að.. Sofa, slappa af, borða óhollt, vera í tölvunni... ;D;D já eitthvað svona sem maður gerir ekki venjulega, alltaf gaman...
Þreytan er annars farin að láta á sér kræla, svo ætla að fara að sinna henni... nóg í bili

Góða nótt

~Lotta

Sunday, June 29, 2008

bloggish...

Ég sat hérna inní stofu heima í sveitinni í kvöld með mömmu gömlu og horfði á Hulk... einstaklega oftæknileguð mynd ;D en ágjæt afþreying jafnframt... Við mamma fórum svo að spjalla og mamma sagði mér frá bloggi sem hún hafði rekist á í gegnum einhverjar aðra síður... En þar er á ferðinni ungur strákur sem var í MH og sat einmitt með mér hálfa önn á miðgarði... Frábær strákur, það litla sem ég kynntist honum en ástæðan fyrir að ég minnist á bloggið hans er sú að hann er að berjast við krabbamein. Mamma semsagt hafði verið að lesa bloggið ég ákvað að fara og lesa bloggið... Ég las allar færslur sem ég fann og mikið eru þær hreinskilnislegar og góðar... Og ég dáist að honum að hafa orku í að segja öllum sem vilja heyra af honum frá öllu því sem hann er að ganga í gegnum núna... það er ekkert lítið...
Jafnframt þegar ég var að lesa færslurnar hans minnti það mig alveg rosalega á færslurnar hennar Birnu um Védísi litla engilin minn... Alltaf þegar ég las þær færslur, og les ennþá þegar hún Birna nennir að blogga fór maður að hugsa um það hvað maður táraðist alltaf jafn mikið yfir því hvað allir voru að ganga í gegnum en samt gat maður alltaf brosað í gegnum tárin... og það er einstaklega gott að geta haft eilítinn húmor fyrir sjálfum sér og öðru þósvo að maður eigi erfitt, það gefur manni bara svo mikið að geta alltaf brosað.

Annars hef ég það ágjætt.. að minstakosti mun betur en aðrir! Var komin með Reykjavíkur síki á fimmtudaginn svo ég ákvað að skella mér þangað í gær, hitti Venný og við rölltum niður laugarveginn, borðuðum góðan mat og spjölluðum heilmikið um allt mögulegt.. um kvöldið hitti ég svo Ingvar og við spjölluðum jafnvel ennþá meira um daginn og veginn... Í dag fór ég svo niðrí Hafnafjörðinn til Hlyns.... Skoðaði "nýjja" húsið sem ég er búin að ætla að koma og skoða í ár!!! enda gerði mamma hans pínu grín að mér ;D og átti ég það svosem alveg skilið :p
Tattooið er svona hægt og rólega að gróa.... fer pínulítið í taugarnar á mér að pabba tattoo sé nánast fullgróið og mitt rétt að byrja... pifff.... en ég segi þá bara í staðin að mitt verði flottara ;D það versta í sambandi við þetta er nú eiginlega að fótarakstur hefur sko ekki gengið upp þessadagana... tjahh gæti rakað hálfann fótinn og allann hægrifótin... en veit ekki hversu smart það væri ;)... oooog svo líka helvítis sundferðir sem ég má ekki iðka fyrr en tattooið er gróið... og endilega núna! þegar það er frááábært veður og tilvalinn tími fyrir sundferðir... O well... maður skapaði sér þessi vandamál svosem alveg á eigin spítur ;D
Vinna á mrgn... frá 6-11... ohh það sem maður gerir ekki fyrir þessa vini sína... ég sem ætlaði sko EKKI að vinna eina sekúndu af þessari helgi.... sem væri þá 6 vinnuhelgin mín í röð... en jáhh þarna endá ég, kl 6 á mrgn... ekki einusinni láta ykkur detta það í hug að koma í hyrnuna og fá ykkur að éta!!! þið getið bara eldað heima hjá ykkur... það verður nóg að gera samt!! Fyrir vinnu ætla ég að vera uppí Lundareykjadal og ríða út og fíflast í ánni... ójáhh það er langþráð ;D;D;D

Annars er kominn innilegur tími á svefn... ætla að stela rúminu hans pabba, fyrst hann er farinn austur á hestalandsmót ;D;D það er nefinilega tempur dýna í rúminu hans... og mér er illilega illt í bakinu!!! svooo mohohoho... annars fer ég á landsmót á miðvikudag-fimmtudag... ekki alveg ákveðið.... enda frekar óákveðið plan fyrir þessa viku... plan A er... "þetta reddast".... plan B er "... pabbii..." jáhh ;D gott að hafa kallinn þarna ef allt skildi fara úrskeiðis... og svona ef ég verð mjög hungruð ;D mm já

Góða nótt, njótiðið lífsins, meðan þið getið... ;**

Friday, June 27, 2008

Flehh!!

Dagurinn í dag var erfiður... aðallega andlega... var innilega fucking pirruð allann helvítis daginn og ohh!!!! Eeeen allavegana... fékk það loksins í gegn að við Kidda erum saman á vakt... það var líka frekar mikill pirringur í stúlkunni og ég held að yfirmaðurinn hafi alveg skynjað þennann pirring!!! Og það var ágjætt því loksins dru*****st hann til að koma til móts við mig!! og ekki seinna vænna í 6 skipti sem ég bið hann um þetta! En jáhh... Lotta litla ánægð! ;D

Annars.... er ég heima, sturtuð, í slökun, við skjáinn... hlustandi á nýjja músík... fann lag... flott lag... textinn hentar mér ágjætlega... set smá brot hér... annars er ég út-skrifuð í bili... ;)

I miss you,
I miss your smile
and I still shed a tear
every once in a while
and even though it's different now
you're still here somehow
my heart won't let you go
and I need you to know
I miss you
sha la la la la
I miss you


<33